11.02.09

Permalink 18:17:16, by Bjarki Email , 699 words, 2597 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Loksins fréttir

Jæja þá drattast maður loksins til að skrifa smá fréttir. Það hefur margt gerst síðan síðast var skrifað... Venni og fjölskylda fluttu aftur til Íslands í júlí. Þau sendu börnin heim á undan og Bryndís fékk að fara með. Þá notuðum við fullorðna fólkið tækifærið og skruppum í sólarlandsferð til grísku eyjunnar Rhodos. Það var mjög fín ferð þar sem farið var í köfun, fiðrildadal, Acrapolish og í bátsferðir. Eftir þessa ferð eyddum við síðan sumrinu á Íslandi og við vorum einnig þar yfir jólin.

Lesa meira...

26.05.08

Permalink 08:16:22, by Bjarki Email , 634 words, 3968 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Bilbao ferð með meiru

Eins og fram kom í síðustu færslu þá var haldið upp á árshátíð Kögunar í Bilbao í tilefni 20 ára afmælis fyrirtækisins. Það var gaman í Bilbao og veðrið lék við okkur allan tíman með 25 stiga hita og sól. Norðurhluti Spánar er mun grænni en sá syðri og hitastigið er jafnara. Þar rignir meira og hafði t.d. rignt eins og hellt væri úr fötu helgina áður. Þetta er vinsæll ferðamannastaður fyrir Spænska aðalinn og þá sérstaklega San Sebastian en við heimsóttum þann bæ einmitt. San Sebastian er vagga Baskanna þar sem krössuð eru slagorð á veggi og hengdir upp áróðursborðar hér og þar. Það sem stendur uppúr ferðinni var San Sebastian ferðinog að sjálfsögðu gala ball sem haldið var á hótelinu. Ferðin okkar í Guggenheim safnið var einnig athyglisverð. Einnig var gaman að narta í smárétti (Pintos eða Tapas) á hverju götuhorni með allskyns góðgæti og renna því niður með hvítvíni eða bjór. Töluvert er af athyglisverðum arkítektúr í Bilbao sem var skemmtilegt að sjá.

Lesa meira...

17.04.08

Permalink 06:57:46, by Bjarki Email , 488 words, 8408 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Skíðaferðasaga og afmælisveislur

Jæja þá erum við komin aftur frá swissnesku ölpunum, þetta var mjög skemmtilegt, við vorum þarna á "off season" tíma þ.e. þegar helsta skíðatraffíkin er búin og farið að hlýna í veðri. Það góða við að vera "off season" er að það eru engar raðir í lyfturnar. Við vorum í frábærum skála sem var nálægt skiðasvæðinu og hægt var að renna sér beint frá skálanum niður í lyftu. Brekkan var frekar brött þannig að Venni, Valgeir og kannski Hrafnkell voru þeir hugrökku að láta sig flakka niður. En þegar við komum úr fjallinu var fínt að renna sér beint í skálann.

Lesa meira...

04.04.08

Permalink 16:35:11, by Bjarki Email , 132 words, 15134 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Næsti áfangastaður: Sviss

Jæja gott fólk, þá er komið að því. Á morgum skellum við okkur í skíðaferð til Sviss. Við munum fljúga frá Gatwick kl. 07.35 í fyrramálið sem þýðir að við þurfum að leggja af stað klukkan 04.00 í nótt. Við ætlum að keyra niður á völl og parkera bílnum í "long term parking". Við höfum hlakkað mikið til þessarar ferðar og þá sérstaklega Bryndís. Venni og fjölskylda ætla að keyra og fara líka eld snemma af stað í ferjuna yfir ermasundið. Við hittums síðan í fjallakofanum. Við verðum í þessari brekku á sunnudagsmorgun :D

Thyon web cam

Það þýðir víst lítið að hafa samband við okkur á meðan við verðum þarna. Það verður ekkert internetsamband þannig að við munum ekki svara pósti ;)

Biðjum að heilsa öllum!

23.03.08

Permalink 10:58:44, by Bjarki Email , 405 words, 2568 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Páskafréttir

Gleðilega páska gott fólk! Nú eru amma og afi úr Hnífsdal í heimsókn yfir páskana ásamt Jósef JR. Það var haldið gott íslenskt pylsupartý um leið og amma og afi komu af flugvellinum en við þurftum að bíða lengi eftir þeim þar sem það var slys á hraðbrautinni og mikið um tafir. Það tók Vernharð 6 tíma að sækja þau sem hefði átt að taka rúma 2 tíma ef allt hefði verið eðlilegt. Í gær fóru allir (nema ég var að læra :( ) í ferð til Hastings í nokkurskonar sædýrasafn. Það var mjög skemmtileg ferð en þar voru sköturnar líklega skemmtilegastar og einnig vakti kolkrabbinn og "mini" hákarlarnir lukku. Sköturnar komu alveg að fólki og þeir sem vildu gátu klappað þeim.

Lesa meira...

:: Next Page >>

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

| Next >

July 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 1

powered by
b2evolution