Halló allir og velkomin á blog.bjarki.net!
Við höfum verið að koma okkur fyrir þessa fyrstu daga (síðan miðvikudaginn 6. sept). Við fórum beint af flugvellinum í íbúðina okkar í Canterbury, tók ekki nema rúmlega klukkutíma frá Gatwick flugvelli í leigubíl. Þegar við vorum að renna í hlað fékk ég símhringingu frá Marel í VKS og kom þá í ljós að kona nokkur hafði tekið tölvutöskuna mína í missgripum.
Hún hafði sem sagt hringt niður í vinnu til mín. Við vorum með tölvuna hennar en hún var með báðar tölvurnar okkar, þ.e. vinnutölvuna mína og heimilistölvuna en þær voru báðar í töskunni. Okkur leið betur þegar við komumst að því að konan var íslensk (Guðbjörg Sandholt) og fengum við tölvurnar okkar 2 dögum seinna í póstinum. Guðbjörg var með alveg eins tölvutösku og við og hún setti hana einmitt í sama farangursrými og okkar í flugvélinni. Það er um að gera að skoða vel og vandlega að maður sé með rétta tölvu í flugvélinni ;o)
Íbúðin er fín fyrir utan að það er teppi á öllu og dýnan sem við sofum á er svo mjúk að við erum bæði aum í bakinu. Það er eins og maður sitji uppréttur þegar maður leggst því maður sekkur svo djúpt niður með rassinn. Staðsetningin er góð og veðrið hefur verið frábært síðan við komum, yfirleitt yfir 20 stigum og sól. Bryndís er búin að fara tvisvar á nýja leikskólann í klukkutíma í senn. Það hefur verið frekar erfitt fyrir hana og í seinna skiptið prófaði ég að fara í smá stund. Það reyndist henni mjög erfitt og grét hún hástöfum. Þó náði hún sér niður inn á milli en byrjaði á ný þegar hún mundi að pabbi var farinn. Á morgun er hún búin að samþykkja að reyna að gráta ekki þó að pabbi og mamma fari í vinnuna en hún verður hálfan daginn. Við vonum að hún láti sig hafa þetta og eflaust gerir hún það. Henni finnst þó mjög gaman að sulla í vatnsbalanum sem er úti í garði í nýja leikskólanum. Þar er fullt af risaeðlum og bátum sem hægt er að sulla með.
Við höfum verið internetlaus síðan í gær þannig að fáir hafa heyrt frá okkur. Það hefur verið frekar mikið stress að redda almennilegri nettengingu en það tekur á bilinu eina viku - 2 mán. Ég vildi geta farið að vinna strax þannig að ég keypti mér kort frá Vodafone sem er þráðlaust og gefur mér tengingu uppá sirka 380kB sem er u.þ.b. 3x hraðara en ISDN þegar best lætur. Þetta er rándýrt en reddar mér í bili á meðan ég er að bíða eftir landlínunni og almennilegu breiðbandi. Það tekur tíma að koma sér fyrir í nýju landi. Það þarf að fá sér bankareikning, síma og ýmsar nauðsynjar til heimilisins. Við erum með heimasíma: 0044 1227 464 387 og GSM: 0044 7901 965 434 og síðan erum við að sjálfsögðu með Skype en notendanafnið okkar þar er Bjarkmeister.
Ingibjörgu líst vel á skólann, hún er búin að fara í kynningu og er að vinna í fyrsta verkefninu sem hún þarf að skila á þriðjudaginn. Hún situr við hliðina á mér og föndrar en Bryndís er sofnuð í sínu rúmi. Reglulega velta skemmtilegir hlutir uppúr Bryndísi eins og "Það má ekki það" (það má ekki) og "Hann er sondið ðondur" (hann er svolítið vondur). Ef maður spyr hana: "Hvað heitir pabbi?" þá svarar hún "Bjarki". En ef maður spyr síðan "Hvað heitir mamma?" þá svarar hún af bragði "Mamma Bjarki". Við Bryndís höfum átt skemmtilegan tíma saman þessa daga hér í Bretlandi. Hún kemur alltaf með okkur í kerrunni góðu sem við fengum í USA og nú kemur hún að góðum notum þar sem að hægt er að setja matvöruna í botninn en við löbbum alltaf í búðina.
Við munum reyna að vera dugleg að blogga en því miður fáið þið engar myndir í bili þar sem að digital myndavélin okkar eyðilagðist á dögunum. Þið getið fengið ykkur svokallaðan RSS lesara (ég nota Pluck www.pluck.com ) þá sjáið þið um leið ef það koma inn nýjar færslur á bloggið. Til að gerast áskrifandi þá þurfið þið að skruna neðar á síðuna þangað til að þið sjáið XML feeds hægra megin á síðunni. Þar undir er slóðin sem þið þurfið að setja inn í RSS lesarann ykkar. Við munum þó reyna að vera dugleg að láta vita af nýjum færslum með tölvupósti.
http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/25
This post has 2 feedbacks awaiting moderation...
Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:
3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||