Nú eru liðnir nokkrir dagar og lífið í Canterbury færist smátt og smátt í rútínu. Í dag var fyrsti dagurinn þar sem ég náði að vinna allan daginn, þ.e. náði að skila inn rúmlega 8 tíma vinnudag. Ég er ekki ennþá búinn að upplifa Skype fund en sú stund nálgast. Það verður helsta prófraunin á hvort að þetta fyrirkomulag virkar. Annars er þetta Skype alger snilld, ef ég þarf að hringja til íslands er lang best að kaupa sér nokkrar "Skype out" mínútur og þá er ég að tala í símann á local prís (0.018 pund á mínútu). Talgæðin eru ótrúlega góð jafnvel þó ég sé á fremur hægri tengingu. En nóg um það. Veðrið hefur áfram verið gott, yfirleitt rúmlega 20 gráður þannig að maður upplifir sig bara eins og í Kaliforníu hérna.
Bryndís er smám saman búin að vera að sætta sig við leikskólann. Hún hefur reyndar átt mjög erfitt með að sjá á eftir mömmu og pabba þegar hún er komin á nýja
leikskólann, en við höfum verið að senda hana á leikskólann smá stund í einu. Á mánudaginn var hún í u.þ.b. 1 tíma og þá var töluvert grátið. Á þriðjudaginn var hún svo u.þ.b. 2-3 tíma en það gekk aðeins betur. Á miðvikudaginn var hún allan daginn með pabba sem var svo leiðinlegur að hún hafði orð á því að hún vildi fara á nýja leikskólann! Í dag var Bryndís á leikskólanum alveg sjálf í 5 tíma og hún lagði sig meir að segja í klukkutíma. Okkur líst vel á leikskólann og er það sérstaklega gott að allar fóstrurnar eru lærðar og "vilja" vera þarna. Þar að auki eru aðeins 4 krakkar á hverja fóstru þannig að Bryndís fær nóga athygli. ég vona bara að hún verði ekki fúl að vera bara með pabba á morgun en okkur Ingibjörg hefur þótt fremur erfitt að horfa upp á hana gráta þegar við skiljum hana eftir á leikskólanum. Þetta virðist hins vegar vera að koma hjá henni.
Fyrsta vikan í skólanum hjá Ingibjörg er mikið til kynning á því sem koma skal. Hún þurfti að sýna verkefnið sitt á þriðjudaginn og hún fékk bara fína dóma fyrir það. Í gær fór hún í ferð til London þar sem voru heimsótt listasöfn (Tate's og Soane's) og fannst henni það mjög gaman. Krakkarnir sem eru með henni í bekk eru unglingar, á bilinu 18 - 20 ára þannig að Ingibjörg er næstumþví aldurforsetinn. Þó er einn strákur frá N-Írlandi sem er 32 ára en hann er menntaður fornleyfafræðingur en langaði til að breyta til með því að skella sér í arkitektúr.
Nú stefnir í betrumbót á myndaleysi þar sem við misstum okkur að sjálfsögðu um leið og nýju kreditkortin komu í póstinum frá nýja bankanum okkar (HSCB). Ég eyddi nokkrum tímum í að velja vél, en í þetta skipti ákváðum við að kaupa svokallaða SLR vél sem er fagmannlegri. Vélin sem varð fyrir valinu er Fuji FinePix s5600 5,1 megapixla (ljót síða en gott review, meir að segja QuicktimeVR). Ég fékk hana á 186 pund með 256Mb minni og tösku. Hlakka til að prófa gripinn. Ingibjörg þarf líka að hafa almennilega vél í skólanum. Eini gallin sem ég sé við hana er að hún gengur fyrir AA batteríum. Spurning hvort við blæðum ekki í svoleiðis hleðslubatterý síðar.
Nýjasta orðið hjá Bryndísi er "júst" sem við höldum að sé nokkurskonar "jú víst". Þetta er töluvert vinsælt orð hjá henni. Það gengur erfiðlega að venja hana af bleyju en hún sest reglulega á klósettið þó að það komi ekki neitt. Henni fannst víst mjög spennandi að sjá hina krakkana pissa í klósettið í dag á leikskólanum. Þá hlýtur þetta að koma fljótlega.
Bestu kveðjur til allra,
- Bjarki, Ingibjörg og Bryndís
http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/27
Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:
3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||