Núna erum við búin að eiga heima í Canterbury í tvær vikur. Við erum ennþá að venjast nýja staðnum. Bryndís er mun ánægðari á leikskólanum, hún er búin að vera í heila 7 tíma bæði í gær og í dag. Hún grenjar alltaf smá í byrjun en síðan er það strax búið og fóstrurnar hafa ekkert nema gott af henni að segja. Annars er Bryndís búin að finna sér gæludýr en það er krabbakónguló sem á heima við hliðina á útidyrahurðinni. Bryndís skýrði hana Siggi og við reynum að gefa Sigga að éta þegar hrossaflugurnar koma inn á kvöldin. Hann hefur dafnað vel síðan við fluttum inn. Bryndís dafnar líka vel en hún borðar Kornkex (Kornflakes) oftast í morgunmat.
Dótið okkar kom á laugardaginn en við sendum eina palletu hingað út með Atlantsskipi. Það er gott að fá það, þá getum við komið okkur betur fyrir í rólegheitunum. Ingibjörg var að fá nýtt verkefni. Það krefst mikillar vinnu og er mikil áskorun. Við Bryndís reynum að stappa í hana stálinu.
Núna erum við að horfa á Rockstar Supernova, við misstum náttúrulega af síðustu þáttunum og fyrir tilviljun fundum við stöð hér í UK sem er að sýna þetta. Hér heitir þetta Tommy Lee's Rockstar Supernova. Við höfum ekki geta horft á þetta á netinu þar sem að tengingin okkar er svo léleg þannig að það var frábært að hitta á þetta. Reyndar misstum við af Magna performera með Supernova :O(
Ég er ennþá að venjast því að vinna heima hjá mér. Það er mjög skrítið og er svolítið einmannalegt að hafa ekki vinnufélagana við hliðna á sér. Ég reyni samt að Skype-a þau reglulega. Fyrsti Skype fundurinn minn verður á fimmtudaginn, það verður gaman að sjá hvernig það gengur.
Það er komið inn nýtt myndaalbúm, kíkið endilega á það:
http://www.bjarki.net/gallery/index.php?cat=3
Bestu kveðjur til allra,
- Bjarki, Ingibjörg og Bryndís
http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/28
Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:
3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||