Post details: Tvær vikur liðnar

19.09.06

Permalink 16:24:35, by Bjarki Email , 358 words, 3342 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Tvær vikur liðnar

Núna erum við búin að eiga heima í Canterbury í tvær vikur. Við erum ennþá að venjast nýja staðnum. Bryndís er mun ánægðari á leikskólanum, hún er búin að vera í heila 7 tíma bæði í gær og í dag. Hún grenjar alltaf smá í byrjun en síðan er það strax búið og fóstrurnar hafa ekkert nema gott af henni að segja. Annars er Bryndís búin að finna sér gæludýr en það er krabbakónguló sem á heima við hliðina á útidyrahurðinni. Bryndís skýrði hana Siggi og við reynum að gefa Sigga að éta þegar hrossaflugurnar koma inn á kvöldin. Hann hefur dafnað vel síðan við fluttum inn. Bryndís dafnar líka vel en hún borðar Kornkex (Kornflakes) oftast í morgunmat.

...halda áfram hér...


Dótið okkar kom á laugardaginn en við sendum eina palletu hingað út með Atlantsskipi. Það er gott að fá það, þá getum við komið okkur betur fyrir í rólegheitunum. Ingibjörg var að fá nýtt verkefni. Það krefst mikillar vinnu og er mikil áskorun. Við Bryndís reynum að stappa í hana stálinu.

Núna erum við að horfa á Rockstar Supernova, við misstum náttúrulega af síðustu þáttunum og fyrir tilviljun fundum við stöð hér í UK sem er að sýna þetta. Hér heitir þetta Tommy Lee's Rockstar Supernova. Við höfum ekki geta horft á þetta á netinu þar sem að tengingin okkar er svo léleg þannig að það var frábært að hitta á þetta. Reyndar misstum við af Magna performera með Supernova :O(

Ég er ennþá að venjast því að vinna heima hjá mér. Það er mjög skrítið og er svolítið einmannalegt að hafa ekki vinnufélagana við hliðna á sér. Ég reyni samt að Skype-a þau reglulega. Fyrsti Skype fundurinn minn verður á fimmtudaginn, það verður gaman að sjá hvernig það gengur.

Það er komið inn nýtt myndaalbúm, kíkið endilega á það:

http://www.bjarki.net/gallery/index.php?cat=3

Bestu kveðjur til allra,
- Bjarki, Ingibjörg og Bryndís

Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/28

Comments, Trackbacks:

Comment from: Pálína Jónsdóttir [Visitor] Email
Sælar elskurnar allar!!!

Gaman að fá myndir. Það virððist ekki væsa um ykkur þarna og Bryndís hefur stækkað síðan hún var hérna hjá afa og ömmu.

Ástar-og saknaðarkveðjur,
Mamma
PermalinkPermalink 20.09.06 @ 10:24
Comment from: þóra [Visitor] Email
frábært að sjá myndir af ykkur og ég tók einmitt eftir því að þið eruð bara á sandölum og í stuttermabol...... það er annað en við hér heima :-(
baráttukveðjur til ingibjargar með nýja verkefnið..... þetta verður ekkert mál, eins og jón páll segir :-) you go girl. híhí
kv.þóra
PermalinkPermalink 20.09.06 @ 11:54
Comment from: Alma [Visitor] Email
Íbúðin, húsið, gatan og hverfið, þetta
lítur allt mjög vel út a.m.k. á myndum:)
og Siggi virðist hinn myndarlegasti, af
kónguló að vera, ég vona að hann sé ekki ðondur. Gaman að fylgjast með ykkur.
Kv. Alma frænka.

PermalinkPermalink 20.09.06 @ 13:03
Comment from: Bjarki [Member] Email · http://www.bjarki.net
Bryndís segir að Siggi sé sondið ðondur þegar hann er að hakka í sig hrossaflugurnar. Hann fékk þrjár í gærkveldi, tvær sem við gáfum honum og eina sem hann veiddi sjálfur. Hann var bara búinn með tvær af þremur í morgun. En seinni partinn í dag var hann búin með þá þriðju. Hann hefur aldeilis fitnað eftir að Bryndís fór að ala hann.
PermalinkPermalink 20.09.06 @ 13:19
Comment from: Sjonni [Visitor] Email
Þetta er greinilega úrvals íbúð sem þið náðuð ykkur í. Til hamingju með það.
PermalinkPermalink 01.10.06 @ 19:02

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

September 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 1

powered by
b2evolution