Lífið heldur áfram hér í Canterbury. Veðrið heldur áfram að vera gott en þó kom ausandi rigning í fyrradag. Það var svosem ágætt fyrir gróðurinn, eins og mamma myndi segja. Bryndís er orðin nokkuð sátt á leikskólanum, fór meir að segja ekkert að gráta síðast. Mary, yfirfóstran á hennar deild sagði að hún væri mjög skemmtileg, væri húmoristi og væri ekki með neitt "attitude" eins og hún orðaði það. Hún sagði líka að hún væri klár. Við Ingibjörg erum að springa úr stolti yfir þessari umsögn, við erum náttúrulega alveg sammála Mary ;o)
Ingibjörg á að skila 7 skissum inn á morgun í verkefninu sem hún er að vinna í. Hún hefur ekki teiknað mikið yfir ævina þannig að hún fjárfesti í teiknibók þar sem farið er í tæknina við að skissa. Mér finnst þetta hafa gengið vel hjá henni miðað við reynslu og fyrri störf. Á föstudaginn fór hún í fyrirlestur og það er gaman að segja frá því að hún kom heim brosandi út af eyrum því henni fannst hann svo skemmtilegur. Fyrirlesturinn fjallaði um Ludwig Mies van der Rohe sem er/var frægur arkítekt og frumkvöðull nútíma arkítektúrs.
Ég fór í fyrsta skipti á Skype fund á fimmtudaginn og gekk það ótrúlega vel. Ég sat hér við skrifborðið í makindum mínum, en á fundinum var ferðatölva á miðju borði þar sem ég var tengdur inn á Skype-ið þannig að ég gat heyrt í öllum og allir heyrðu í mér. Ég er mjög ánægður með niðurstöðuna og mér heyrðist hinir vera sáttir líka. Á föstudaginn fengum við almennilega tenginu þannig að á næsta fundi verða talgæðin eflaust enn betri.
Okkur Ingibjörgu datt í hug að skoða hvort við gætum keypt okkur íbúð hérna úti. Okkur finnst svo blóðugt að þurfa að borga leigu í 3 ár. Við vissum af nýjum íbúðum rétt hjá skólanum hennar Ingibjargar þannig að við ákváðum að kíkja. Það kom í ljós að þetta eru sérlega vandaðar íbúðir sem henta okkur vel. Verktakinn er þekktur fyrir að vanda vel til verka og kemur það bersýnilega í ljós þegar innréttingarnar eru skoðaðar og allur frágangur. Öll tæki eru innifalin og eru frá AEG og Philip Stark. Við ákváðum að tala við bankann til að sjá hvort við ættum möguleika á að fá lán (mortgage) og kom það á daginn að slíkt er alls ekki svo langsótt. Íbúðirnar voru að renna út eins heitar lummur þannig að við fengum að taka eina frá fram á mánudag en þá kemur í ljós hvort að lánið fari í gegn í bankanum. Við bíðum því spennt. Mér finnst svo fyndið að það skuli vera hægt að taka íbúð frá, þetta er ekki eins og á Íslandi þar sem fólk gerir bara tilboð og getur slegist um íbúðirnar. Reyndar þarf að borga 1000 pund sem þú færð ekki endurgreidd ef þetta gengur ekki, en konan sem vinnur hjá verktakanum var svo elskuleg að sleppa því þegar við útskýrðum aðstöðuna sem við vorum í. Hún samþykkti að bíða fram á mánudag eftir niðurstöðu bankans.
Ég setti inn fleiri myndir, aðallega af íbúðinni sem við skoðuðum. Nýjustu myndirnar
Bestu kveðjur til allra,
- Bjarki, Ingibjörg og Bryndís
http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/29
This post has 3 feedbacks awaiting moderation...
Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:
3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | ||||