Sælt veri fólkið. Það er kominn tími á nýjar fréttir, eflaust margir orðnir forvitnir að sjá hvernig gekk með íbúðina. Við erum búin að standa í heilmiklu veseni í að reyna að redda láni. Það kom í ljós að við erum ekki í mjög góðri stöðu þar sem að við erum bara ný flutt inn í landið og getum ekki sýnt fram á neina veltu. Verktakinn sem er að selja íbúðina hefur beðið þolinmóður á eftir okkur á meðan við höfum staðið í þessu hann bauðst meir að segja til að reyna að finna eitthvað fyrir okkur í gegnum sína tengiliði! Ég efast um að verktaki á Íslandi væri svo rausnarlegur.
Eftir að hafa fengið nei í nokkrum bönkum (þeir vilja fá nokkura mánaða reikningsyfirlit úr breskum banka, breska skattgreiðendur o.s.frv.) ákváðum við að fara til sjálfstæðs "Mortgage broker" eða veðlánara og fann hann lán fyrir okkur sem við ætlum líklega ekki að taka þar sem að kostnaðurinn er of mikill af því. Aðalástæðan fyrir því að við ákváðum að skoða möguleikann á því að kaupa var ef við gætum borgað svipaða upphæð og við erum að borga í leigu af láni. Ef við tækjum þessu láni yrðum við að borga mun meira á mánuði og þyrftum að spenna bogann ansi langt. Það lítur því ekki út fyrir að við kaupum þessa íbúð. Reyndar ætlaði verktakinn að hringja á morgun í einhvern gaur sem hann þekkir sem vinnur hjá breskum banka sem Íslendingar voru að yfirtaka. Ef hann getur reddað okkur láni sem er ekki of dýrt þá gerum við þetta líklega en eins og staðan er í dag þá finnst mér það ekki líklegt. Hins vegar gerum við ráð fyrir að margar af íbúðunum í þessum íbúðaklasa komi á leigumarkaðinn eftir áramót, þá er aldrei að vita nema við tökum eina þeirra á leigu.
Við erum búin að ákveða að setja Bryndísi meira á leikskólann. Núna er hún mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga þar en við ætlum að bæta við föstudagseftirmiðdegi líka. Hún er orðin ansi háð okkur, maður verður helst alltaf að leika með henni. Ég er hræddur um að henni leiðist stundum heima hjá sér. Hún saknar frænkna sinna. Við reynum eftir bestu getu að hafa ofan fyrir henni, við pússlum, sullum, lesum, teiknum og kubbum svo eitthvað sé nefnt. Síðan er náttúrulega í uppáhaldi hjá henni þegar það kemur hrossafluga inn og við getum gefið Sigga kónguló hana. Stundum horfir Bryndís á DVD og er Bugs Life og Finding Nemo í uppáhaldi hjá henni þessa dagana. Það er líka þægilegt fyrir okkur ef við viljum fá smá frið að geta sett bíómynd á. Ég hugsa að nágrannarnir haldi að við séum geðsjúklingar þegar þeir sjá alla fjölskylduna dansa og láta eins og fífl fyrir framan sjónvarpið, en þá er verið að horfa á Latabæ. Annars sýnist okkur Bryndís vera í góðu jafnvægi og hamingjusöm hér í Englandi.
Hér í Canterbury er eitt lítið bíó. Bryndís hefur aldrei farið í bíó og núna er verið að sýna The Ant Bully. Hefur einhver séð hana? Ætli Bryndís hefði gaman af henni miðað við að hún hefur t.d. gaman af Bugs life og Antz?
Nú er farið að kólna aðeins, núna eru 19 gráður og þvílíkar skúrir. Maður hefur sjaldan séð jafnmikla rigningu. Þrumuveður virðist líka vera nokkuð algeng hérna en við höfum orðið svolítið vör við svoleiðis.
Það er fremur rólegt í skólanum hjá Ingibjörgu svona í byrjun, en kennarinn er búin að segja að það verði alveg nóg að gera í vetur hjá þeim. Núna er Ingibjörg í hópverkefni þar sem þau eiga að hanna og búa til tjald sem hægt er að sofa í niðri hérna niðri á strönd í haustveðrinu. Efniskostnaður má ekki vera meiri en 60 pund. Þessu verkefni lýkur síðan með því að þau eiga að eyða nóttinni í tjaldinu niðri á strönd! Það ætti að vera hvati þannig að þau vandi sig betur. Ingibjörg smíðaði lítið pappírsmódel af tjaldinu sem hópurinn hennar átti hugmynd að. Kennaranum leist vel á afurðina og taldi þau vera á góðri leið.
Það eru komnar inn fleiri myndir, albúmið heitir 1. Október 2006 http://www.bjarki.net/gallery/index.php?cat=3
Við biðjum að heilsa öllum
- Bjarki, Ingibjörg og Bryndís
http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/30
This post has 2 feedbacks awaiting moderation...
Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:
3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | ||||