Post details: Fyrsta sushi veislan

14.10.06

Permalink 09:06:50, by Bjarki Email , 624 words, 5322 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Fyrsta sushi veislan

Halló allir! Kominn tími á nýjar fréttir. Íbúðarkaupin eru úr sögunni sem stendur en það er aldrei að vita hvað við gerum ef við finnum eitthvað sniðugt.

Ég rakst á sushi hillu í Tesco sem er ein búðin sem við verslum oft í. Við ákváðum út frá því að prófa fiskinn sem þar er að finna. Þetta var svona stórmarkaðslax (norskur), ekki sá girnilegasti á markaðinum en við slógum til. Þegar komið var að því að setjast niður og borða herlegheitin uppgötvuðum við að sushi soya sósan gleymdist!

...halda áfram hér...


Við ákváðum að prófa að nota Tamari sósu sem við áttum í staðinn og kom það svona ljómandi vel út. Fiskurinn var hreinasta afbragð, núna er sushi á borðum 2x í viku með Tamari sósu. Tær snilld!

Bryndís hefur það gott og er mjög ánægð á leikskólanum. Fóstrurnar kunna mjög vel við hana og þær segja að hún sé mjög dugleg. Hún er farin að segja eitt og eitt orð á ensku, skipa hinum krökkunum að "sit down" o.s.frv. Hún er líka dugleg að tala íslensku við okkur heima. "Sjáðu ég" = "sjáðu mig", "ekki alveg grax" = "ekki alveg strax", "ég kannt ekki" er einhversstaðar á milli "ég get ekki" og "ég kann ekki". Við keyptum handa henni Nemo bangsa á Ebay sem víkur yfirleitt ekki langt frá henni og er í miklu uppáhaldi. Það var nefnilega önnur stelpa á leikskólanum sem átti svoleiðis og Bryndís komst í hann. Það kostaði víst nokkur tár þegar stelpan vildi fá hann aftur. Bryndís fór með nýja Nemó sinn með sér á leikskólann í gær. Það er mun meira gert fyrir hana á þessum leikskóla miðað við leikskólann á Íslandi. Hér kemur hún yfirleitt heim með nýtt föndur á hverjum degi en það gerðist sjaldan heima. Hérna eru líka mun færri krakkar á hverja fóstru og hér eru allar fóstrur menntaðar þannig að þetta gengur bara vel. Á móti kemur að leikskólinn er mun dýrari hérna úti.

Ingibjörg þarf að skila tjaldinu á þriðjudaginn í næstu viku þannig að við Bryndís sjáum lítið af henni þessa helgi. Við Bryndís fórum í bíó áðan að sjá Hoodwinked. Þetta var í fyrsta skiptið sem Bryndís fór í bíó og fannst henni það bara gaman. Hins vegar var myndin kannski ekki sú skemmtilegasta fyrir hana, hún var óttaleg vitleysa eins og amma í sveitinni myndi segja. Bryndís bjóst við rauðhettu en hún fékk skrítna rauðhettu sem kann karate, úlf sem er rannsóknarblaðamaður og ömmu sem stundar x-streme sports af krafti.

Það gengur vel í fjarvinnunni hjá mér og þið ykkar sem viljið vera í sambandi við okkur en eru ekki búin að setja upp Skype gerið það núna! Skype nafnið mitt er Bjarkmeister.

Lífið er komið í nokkuð vel skorðaða rútínu hérna hjá okkur þannig að ég er í vandræðum með að skrifa á bloggið. Leiðinlegt að segja alltaf sama hlutinn. En þegar maður tekur nýjar myndir er sjálfsagt að setja þær á netið og smá texta með. Við buðum reyndar nokkrum skólafélögum hennar Ingibjargar í mat á síðasta laugardag. Það var mjög fínt og heppnaðist vel. Nýjasta albúmið heitir Sushi veisla og má finna hér http://www.bjarki.net/gallery/index.php?cat=3

Við biðjum að heilsa öllum
- Bjarki, Ingibjörg og Bryndís

Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/31

Comments, Trackbacks:

Comment from: Ágúst [Visitor] Email · http://www.agust.org

Við notum Tamari sósu mikið, mest í matargerð í stað salts, algjör snilld! kv.AVO
PermalinkPermalink 14.10.06 @ 11:33
Comment from: Hófí [Visitor] Email
Sushiið lítur rosa girnilega út... (hint hint ;0) )

Gott að sjá að Bryndís er orðin sáttari í leikskólanum, en það hefði nú eiginlega varla
verið eðlilegt ef hún hefði ekki verið vör um sig fyrstu dagana!

Kveðja
Hófí
PermalinkPermalink 14.10.06 @ 13:31
Comment from: Barbietec [Visitor] Email · http://www.barbietec.com
*saknsakn* :)
PermalinkPermalink 14.10.06 @ 18:00
Comment from: Pálína Jónsdóttir [Visitor] Email
Alltaf gaman að fá fréttir af fólkinu sínu. Kær kveðja, pabbi og mamma á Hrafntóftum
PermalinkPermalink 15.10.06 @ 08:02
Comment from: Alma [Visitor] Email
Gaman að fylgjast með kveðja L'Alm
PermalinkPermalink 16.10.06 @ 07:10
Comment from: Pálína Jónsdóttir [Visitor] Email
Nú er bara voðinn vís
við erum búin að lóga hænum,
svo er engin draumadís
að dýrka hér á sveitabænum.

segir afi á Hrafntóftum
PermalinkPermalink 20.10.06 @ 05:18
Comment from: Gorgen [Visitor] Email · http://www.iceart.is
sushi er gott........við fríða fórum í gær á maru.....það var æði gott. Komnir nýir eigendur af staðnum. Eina vonda var reikningurinn og svo tjúllaðist einn viðskiptavinurinn því honum fannst koma reykur upp....hann var alveg brjálaður :)
PermalinkPermalink 04.11.06 @ 06:37

This post has 51 feedbacks awaiting moderation...

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

February 2012
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29        

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 2

powered by
b2evolution