Post details: Frúin skrifar, loksins.

02.11.06

Permalink 15:26:07, by ingibjörg Email , 278 words, 9426 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Frúin skrifar, loksins.

Hæ, hæ,
loksins gefur frúin sér tíma til að blogga. Það er búið að vera mikið að gera hjá mér í skólanum, var að skila fyrsta stóra verkefninu mínu fyrir stuttu. Það gekk bara ágætlega, ég þurfti að skila inn þremur hlutum tjaldi, portfolio/sketchbook og stuttri vídeomynd. Fékk smá gagnrýni og líka hrós. Ég hlakka til að fá einkunn þá veit ég meira hvernig mér gengur.

...halda áfram hér...


Annars er lífið hérna í Canterbury mjög gott, þetta er mjög skemmtilegur lítill bær sem við búum í og skólinn er mjög skemmtilegur. Skólinn er frekar lítill og persónulegur, (www.ucreative.ac.uk) við erum farin að þekkja flesta kennarana og við í arkitektadeildinni erum með sér byggingu fyrir okkur. Þetta er í fyrsta skipti sem mér finnst gaman að fara í skólann og hlakka yfirleitt til að fara í fyrirlestra. Þar erum við að kynnast ýmsum arkitektum sem hafa gert frábæra hluti.

Bjarki og Bryndís hafa það mjög gott. Þau fóru í bátsferð um síðustu helgi niður ánna sem liggur í gegnum bæinn, við setjum inn myndir af því http://www.bjarki.net/gallery/index.php?cat=3. Bryndís hefur það gott er orðin mikil pabbastelpa. Þau feðginin eru mikið saman þessa daganna og bralla eitthvað skemmtilegt. Hún segir að pabbi gefir sér allt og kaupi handa henni bangsa og ýmis leikföng en mamma gefi henni ekkert nema kartöflur.

Ég segi þetta gott í bili, bið að heilsa öllum á Íslandinu góða.

Kveðja
Ingibjörg

Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/32

Comments, Trackbacks:

Comment from: Helena [Visitor] Email
Æðislegar myndir, ég vil fara í svona bátsferð þegar við komum í heimsókn :).

Góða helgi
Helena
PermalinkPermalink 03.11.06 @ 03:38
Comment from: Bjarki [Member] Email · http://www.bjarki.net
Það er engin spurning, ég bætti við smá texta við myndirnar.
PermalinkPermalink 03.11.06 @ 14:58
Comment from: Gorgen [Visitor] Email · http://www.iceart.is
Gott að þú fílar skólann.....ég ákvað að senda loksins eitthvað......ég skoða sko vefinn við og við, ætla að vera duglegri að segja hæ.....

bið kærlega að heilsa bjarka og strákastelpunni.....

Þetta er svipað hjá okkur....fríða svo mikið í skólanum að brimir er loksins að verða svolítill pabbastrákur, það er mjög gaman
PermalinkPermalink 04.11.06 @ 06:34
Comment from: Pálína Jónsdóttir [Visitor] Email
Gaman að fá fréttir og myndir. Afi og amma hlóu bæði þegar þau sáu mini-Ingibjörgu. Þetta er búin að vera góður dagur búið að taka inn lömb, hrúta og gamalær. Allir hafa það gott

Ástar-og saknaðarkveðjur,
mamma og pabbi
PermalinkPermalink 04.11.06 @ 12:32
Comment from: þóra [Visitor] Email
frábært að þér skuli nú loksins finnast gaman í skólanum ingibjörg. það hlaut að koma að því, þegar mar finnur það sem mar vill verða þegar mar er orðinn stór :-)
alltaf gaman að sjá myndir af því sem hægt er að bralla í útlöndunum.
bið að heilsa
hafið það gott
kveðja þóra
PermalinkPermalink 06.11.06 @ 10:52
Comment from: Margrét, Jón Arnar og co [Visitor] Email
Gaman að heyra að allt gengur vel, hér gengur allt eins og það á að gera mkg stækkar og jas sýnir stuðning með að gera slíkt hið sama. Gaman að lesa um pabbastelpuna og kartöflurnar.
Hlökkum til að sjá ykkur, söknum ykkar. Kær Kveðja úr Borgarnesi
PermalinkPermalink 06.11.06 @ 17:03
Comment from: Helga Hreinsd. [Visitor] Email
Rakst óvart á þessa síðu eftir krókaleiðum.
Fékk nett flashback. Varð að kommenta!
Fannst ég vera stödd í endaherberginu
á NÖS. Nei, þú nenntir allavega ekki að mæta í skólann þar..haha.
Kíkti á nokkrar myndir. Þið eruð bara ALVEG
eins og síðast (fyrir 13 árum). Hvernig er þetta eiginlega með ykkur?!
Til hamingju með litlu stelpuna ykkar og
gangi ykkur vel í Englandi.
Gaman að rekast á ykkur ;)
Bý sjálf í Osló og hef það mjög gott.
Kær kveðja
Helga Hreinsd.
PermalinkPermalink 08.11.06 @ 14:44

This post has 27 feedbacks awaiting moderation...

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

February 2012
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29        

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 3

powered by
b2evolution