Post details: London Sushi ævintýri

23.11.06

Permalink 16:35:54, by Bjarki Email , 602 words, 4882 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

London Sushi ævintýri

London Sushi ævintýri

Loksins drattast maður til að skrifa inná þetta blessaða blogg, o jæja, ekki nema rúmlega hálfur mánuður á milli færslna... Það er brjálað að gera, ég á fullt í fangi með að skila inn tímunum mínum í vinnunni, er oft að vinna á kvöldin til að ná því en þess á milli er ég að vinna í vefsíðu fyrir Besta bróður (þ.e. ef ég er ekki í húsverkunum eða að sjá um Bryndísi). Ég set inn link á síðuna þegar ég þarf að fá hjálp við að prófa hana. Það er einnig mikið að gera hjá Ingibjörgu, næstu verkefnaskil hjá henni eru 30. nóv þannig að hún er mjög upptekin þessa dagana. Verkefnið hennar fjallar að þessu sinni um lestarstöð í london sem heitir London Bridge. Við skelltum okkur þangað í byrjun mánaðarins bæði fyrir hana til að taka myndir og að sjálfsögðu notuðum við tækifærið og skelltum við okkur í Sushi í leiðinni!

...halda áfram hér...


Eftir að hafa ráðfært okkur við Haffa vin okkar ákváðum við að fara á Pham sushi. Við þurftum að fara í neðanjarðarlestina til að komast þangað frá London Bridge. Bryndís fór með okkur og við þurftum að burðast með kerruna með okkur í lestina. Ferðin var ekki sú skemmtilegasta, lestarferðin frá Canterbury til London tók rúmlega 1,5 tíma og þurftum við að skipta tvisvar um lest vegna tafa. Mér fannst ferðalagið þó vera þess virði því Sushi-ið var ótrúlega gott. Ég át svo sannarlega á mig gat. Fyrir alla sushi fíkla sem við þekkjum var þetta meðal annars á matseðlinum: Eel (áll), Salmon (lax), Toro (fatty tuna, túnfiskur), Seabass (vartari), Spicy Tuna Roll, Cruncy Tuna Roll, Deep fried Tempura roll, Crab roll, Rainbow roll og ótrúlega góður hörpudiskréttur. Við ákváðum meir að segja að panta líka nokkrar rúllur til að hafa með okkur heim :>>

Bryndís er orðin mjög ánægð á leikskólanum og fóstrurnar eru sem fyrr mjög ánægðar með hana og hæla henni mikið. Við erum líka mjög ánægð með hana. Hún er svo dugleg, er farin að pissa í koppinn og er hætt að vera með bleyju á daginn. Það bara kom allt í einu hjá henni, þá ákvað hún að það væri mjög mikið sport að fara að pissa í kopp og hafa ekki verið mörg slys síðan. Hún er líka farin að telja uppá fimm á ensku og hún er með breska hreiminn alveg á hreinu.

Nú er orðið jólalegt niðri í bæ, komið upp stórt jólatré og skreytingar. Ég efa ekki að það er við það sama á Íslandi, löngu búið að skreyta allt til dauða. Við erum búin að versla flugmiða til að koma heim um jólin en við leggjum í hann þann 17. des og förum aftur út 8. jan. Við hlökkum rosalega mikið til að koma heim. Við óskum eftir sjálfboðaliðum til að leifa okkur að gista þegar við erum í bænum. Við verðum vestur í Hnífsdal um áramótin, frá 31. des - 3. jan. Við hlökkum til að hitta alla.

Ég setti inn nokkrar myndir og eitt stykki videó. Almbúmið heitir London Sushi og má finna hér: http://www.bjarki.net/gallery/index.php?cat=3

Bestu kveðjur frá Canterbury
Bjarki, Ingibjörg og Bryndís


Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/33

Comments, Trackbacks:

Comment from: Margrét, Jón Arnar og co [Visitor] Email
Alltaf gott að sofa í Borgarnesi:)
PermalinkPermalink 23.11.06 @ 18:01
Comment from: barbietec [Visitor] Email · http://www.barbietec.com
úúú.. prófa prófa prófa prófa..
ég skal prófa :)
PermalinkPermalink 24.11.06 @ 13:15
Comment from: Pálína Jónsdóttir [Visitor] Email
Gaman að heyra frá ykkur elskurnar og sjá dísina sína dansa.

Kveðja,
mamma og pabbi
PermalinkPermalink 27.11.06 @ 12:06
Comment from: Gísli Eiríkur og Helgi [Visitor] Email
Ætli Alexander heitin Litvinenko sé sammála þér um ágæti Shushi barana í London?
PermalinkPermalink 06.12.06 @ 12:59
Comment from: hemmi hressi [Visitor] Email
Oj ömurlegt blogg eikkvað.
Bloggið er dautt. las það á internetinu, einhverri bloggsíðu.
PermalinkPermalink 03.01.07 @ 17:11
Comment from: þóra [Visitor] Email
á ekkert að skrifa á nýja árinu??
hvaðeraðgerast :-)
gangi ykkur vel. bið að heilsa
kveðja þóra
PermalinkPermalink 29.01.07 @ 09:46

This post has 4 feedbacks awaiting moderation...

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

February 2012
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29        

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 2

powered by
b2evolution