Post details: Minning um Skúla dreng 21.04.1997 - 01.02.2007

06.02.07

Permalink 08:16:04, by Bjarki Email , 186 words, 2961 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Minning um Skúla dreng 21.04.1997 - 01.02.2007

Nú er hann Skúli okkar dáinn. Hann varð fyrir bíl þann 1. feb. Skúli fylgdi okkur allt frá því að við tókum hann að okkur í Kaliforníu. Við ættleiddum hann en Berglind systir átti hann fyrstu tvö árin.

Skúli flutti til Íslands með okkur árið 2002 og endaði ævina í sveitinni hjá ömmu og afa. Honum leið vel þar og hafði líklega aldrei verið í betra formi, þá á gamals aldri eða níu ára.

Samkvæmt mannanofn.com þá er nafnið Skúli komið af nafnorðinu "skjól" og merkir sá sem skýlir, - verndari. Hann passaði vel upp á okkur og Bryndísi líka eftir að hún fæddist. Hann bar nafn með rentu.

Við söknum Skúla mikið og okkur finnst við hafa misst hluta af litlu fjölskyldunni okkar.

Hratt og mikið hlaupið gast,
sem hljóta að teljast undur,
skynsamur og skýr þú varst
Skúli sæti hundur.
- BJÞ


Við tókum saman stórt myndaalbúm með sögum til heiðurs Skúla: http://www.bjarki.net/gallery/thumbnails.php?album=21

Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/34

Comments, Trackbacks:

Comment from: Vala [Visitor] Email
ohhh nei elsku besti Skúli ertu farinn frá okkur :(
Það var ekki hægt annað en að þykja vænt um þig elsku vinur, enda eini hundurinn í heiminum sem vann minn hug og mitt hjarta.
Takk fyrir allar góðu stundirnar Skúli minn , þín verður ávalt sárt saknað. Það var svo gaman að fá þig í heimsókn og koma í heimsókn til þín litli vinur.
PermalinkPermalink 06.02.07 @ 10:01
Comment from: þóra [Visitor] Email
elsku fjölskylda
ég samhryggist ykkur mikið vegna fráfalls skúla dreng. búin að tárast mikið og brosa út í annað yfir myndunum af honum.... gaman að fá að sjá svona mynda-minningu um skúla.... hann bar jú nafn með rentu, skúli sæti hundur.... hans verður sárt saknað
samúðarkveðja frá þóru & bjarka
PermalinkPermalink 06.02.07 @ 12:10
Comment from: Bjarni og Heida [Visitor] Email
Elsku bestu vinir. vid sendum samudaroskir til ykkar vegna frafalls Skula. Vid vitum ad hann var stor partur af litlu fjolskyldunni og /id hljotid ad sakna hans sart. Vid attum lika godar stundir med honum i Kaliforniu og gleymum honum aldrei. Astar- og saknadarkvedjur.

Heida og Bjarni (sem eru thessa stundina i Floridahusinu)
PermalinkPermalink 06.02.07 @ 14:52
Comment from: Þórunn og Muggur [Visitor] Email
Sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur. Vitum vel hve sárt og erfitt er að missa svona hluta af fjölskyldunni því þessi dýr verða svo sannarlega hluti af henni.

Erum í Flórída og höfum það gott, megið endilega senda okkur símann hjá Heiðu og Bjarna ef þið eruð með hann, værum svo sannarlega til í að hitta þau.
Luv to you all
Þórunn, Muggur og Ellý
PermalinkPermalink 06.02.07 @ 16:06
Comment from: Margrét, Jón Arnar og co [Visitor] Email
Mikið er leit að heyra að Skúli sé búinn að kveðja. Hann var frábær hundur eins og við vitum öll. Sendum samúðarkveðjur til ykkar allra, hlýtur að vera erfitt að kveðja hann svona. Væri alveg til í að heyra meira um þetta......
Ástar og saknaðarkveðjur, Margrét, Jón Arnar og ómegðin í Borgarnesi
PermalinkPermalink 06.02.07 @ 17:01
Comment from: Lauga [Visitor] Email · http://godpool.com
Æji en leiðinlegt að heyra :(
Erfitt að missa svona góða vini og fjölskyldumeðlimi.
Ég samhryggist innilega

Kv. Lauga
PermalinkPermalink 07.02.07 @ 08:29
Comment from: Sunna, Maggi og Júlía Jökulrós [Visitor] Email · http://www.magnusunna.com
Æj hvað þetta var sorglegt :'(
Við samhryggjumst innilega!
Skúli var yndislegur hundur.
Knús!
PermalinkPermalink 09.02.07 @ 06:05
Comment from: Olla [Visitor] Email
Mikið er sorglegt að heyra þetta. Skúli var stórkostlegur hundur. Samhryggist ykkur innilega. Kveðja, Olla
PermalinkPermalink 13.02.07 @ 15:11
Comment from: Fridel [Visitor] Email · http://www.gulurkaktus.com
Elsku Skúli
Þú varst yndislegur hundur og gafst mér nýja sýn á hunda. Ég man þegar ég hitti Bjarka og Ingibjörgu fyrst, þá komu þau í heimsókn til okkar í Garðabæinn. Þau hringdu á undan sér til að athuga hvort þau mættu ekki örugglega taka Skúla sinn með. Ég hélt nú ekki....(fyrir mér voru hundar illa lyktandi kvikindi sem ég vildi bara alls ekki koma nálægt)... um leið og ég hitti þig svo bræddiru mig algjörlega. Þú varst eitthvað svo spes. Mér fannst þú ekki vera hundur. Þú ert líka ástæða þess að við fengum okkur hann Jón.
Takk Skúli fyrir allar góðu stundirnar :*
PermalinkPermalink 14.02.07 @ 07:07

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

September 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 1

powered by
b2evolution