Post details: Síðbúnar fréttir

25.03.07

Permalink 15:55:49, by Bjarki Email , 494 words, 4301 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Síðbúnar fréttir

Jæja þá kemur loksins blogg frá okkur í Canterbury. Ingibjörgu gengur vel í skólanum. Hún fór til Parísar á vegum skólans fyrir 2 vikum og var sú ferð vel heppnuð. Við Bryndís vorum ein heima frá mánudegi til fimmtudags á meðan og gekk það vel.

...halda áfram hér...


Bryndís er farin að tala meiri ensku og gengur vel á leikskólanum sem fyrr. Núna er hún á leikskólanum frá mánudegi til fimmtudags en hún fær frí á föstudögum. Þá reynum við feðginin að gera eitthvað skemmtilegt saman og mamma er stundum lítið í skólanum á föstudögum þannig að við nælum okkur þá í langa helgi.

Í gær fengum við pössun fyrir Bryndísi og fórum út að borða. Það var virkilega gott fyrir okkur hjónin að gera eitthvað saman. Írskt vinafólk okkar passaði Bryndísi og var hún hæstánægð með það að fá smá tilbreytingu og losna við foreldrana.

Við fjölskyldan fórum í dýragarðinn um síðustu helgi með May vinkonu hennar Bryndísar af leikskólunum ásamt foreldrum hennar. Það var mjög spennandi og fannst Bryndísi lemúrarnir skemmtilegastir. Það er nefnilega sér svæði þar sem hægt er að fara í göngutúr þar sem lemúrarnir eru frjálsir allt í kring. Þeir eru ótrúlega sætir. Bryndísi fannst líka gaman af górillunum, fílunum og litlu apaköttunum svo ekki sé minnst á stóru kyrkislönguna! Reyndar held ég að Bryndísi hafi fundist skemmtilegast að fara í búðina sem er í dýragarðinum því þar fann hún tígrisdýrabangsa sem hún gat farið á hestbak á. Hún gat líka látið hann urra með því að ýta á þartilgerðan takka.

Í febrúar kom snjór hér í Canterbury. Þegar það gerist fer allt á annan endann. Samgöngur liggja meira eða minna niðri og allt fer úr skorðum. Við notuðum tækifærið og gerðum snjókall úti í garði og skemmtum okkur konunglega. Bryndís var hæstánægð með snjóinn.

Við ætlum að kíkja heim um páskana 1. - 15. apríl og hlökkum við mikið til. Bryndís ætlar að fá "froskaegg" eins og hún kallar það þegar hún kemur í sveitina.

Í gær fór www.koggull.com í loftið en það er síða sem ég hef verið að vinna í fyrir Bergstein bróður minn. Þið sem nennið megið gjarnan prófa síðuna og láta mig vita ef þið finnið einhverja galla. Gert er ráð fyrir að fólk sé með hraða tengingu enda er síðan uppfull af myndbrotum. Það þarf Quicktime plugin til að sjá videoin.

Ég setti inn nýtt myndaalbúm á http://www.bjarki.net/gallery/thumbnails.php?album=22

Bestu kveðjur frá Englandi,
Bjarki, Ingibjörg og Bryndís

Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/35

Comments, Trackbacks:

Comment from: þóra [Visitor] Email
hæhó útlandabúar
meiriháttar að sjá myndir & lesa smá um ykkur. rosalega lítið þið alltaf vel út :-)
hlakka til að hitta ykkur um páskana fyrir westan
kveðja þóra
PermalinkPermalink 26.03.07 @ 15:01

This post has 1 feedback awaiting moderation...

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

September 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 2

powered by
b2evolution