Post details: Ný íbúð og bíll; ferð út númer 2

30.09.07

Permalink 16:48:12, by Bjarki Email , 791 words, 5281 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Ný íbúð og bíll; ferð út númer 2

Loksins loksins blogg gott fólk! Það eru eflaust margir sem bíða spenntir eftir að heyra frá okkur hvernig hefur gengið í þetta sinn hjá okkur í Canterbury. Við höfum haft nóg að gera við að koma okkur fyrir. Fyrir þá sem ekki vita að þá er Venni bróðir hennar Ingibjargar fluttur hingað til Canterbury ásamt fjölskyldu (Hjónin ásamt 3 börnum, tveir strákar 11 og 13 ára, og ein 5 ára stelpa). Þau ákváðu að prufa England í 1 ár. Við höfum notið góðs af veru þeirra hér því við vorum íbúðarlaus þegar við komum hingað þann 1. sept. Við áttum heima inni á þeim á meðan við vorum að redda okkur íbúð til að leigja. Okkur tókst að redda íbúð mjög nálægt þeim eins og við vildum. Það er rosalega gott að hafa hluta af fjölskyldunni í næsta nágrenni :o)

...halda áfram hér...

Við fluttum inn í okkar íbúð 12. sept. Hún er alveg ný og við erum þau fyrstu sem eiga heima í henni. Áin (River Stour) rennur á milli okkar og Venna. Við erum staðsett á eyju þar sem gömul milla (Barton Mill) stóð eitt sinn. Íbúðin er á annari hæð í fjölbýli og eins og áður sagði alveg ný. Við erum mjög ánægð með hana þar sem að hún er björt og rúmgóð. Engin húsgögn fylgdu íbúðinni þannig að IKEA er búið að vera okkar annað heimili þessa dagana. Við erum búin að húsgagna okkur upp og koma okkur ágætlega fyrir. Íbúðin var öll teppalögð en við tókum okkur til og keyptum plastparket í B&Q og skelltum því ofaná teppið í stærsta rýminu. Það kemur ótrúlega vel út og kostaði álíka mikið og að kaupa góða mottu undir eldhúsborðið. Það koma myndir af íbúðinni seinna.

Þar sem að við þurftum að keyra oft í IKEA (næsta búð er í útjöðrum London sem er u.þ.b. klukkutíma keyrsla) þurftum við að sjálfsögðu að kaupa okkur bíl. Við duttum niður á glæsilega drossíu fyrir góðan pening: Ford Mondeo 1998, sjálfskiptur og mikið keyrður (148000 mílur) og pínulítið beyglaður. Einungis 450 pund. Við vonumst til að hann endist okkur í þessi 2 ár án mikils viðhalds en síðan getum við hent honum með góðri samvisku.

Við erum ekki komin með almennilega tengingu við netið eins og er og er það afsökun fyrir lélegheitum í bloggstarfssemi. Ég byrjaði í skólanum 10. sept og hefur það gengið vel hingað til. Það má segja að ég sé í upprifjun þessa fyrstu vikur þar sem að sumir aðrir í þessu masters prógrammi eru ekki með bakgrunn í forritun. Það er verið að koma öllum á sömu blaðsíðu. Fyrir þá sem skilja að þá er ég alfarið að forrita í java og er verkefnið fyrir fyrsta kúrsinn meðal annars að skrifa leik í anda "World of Zuul".

Eftir að hafa rætt við nokkra samnemendur hef ég komist að því að ég ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Tölvudeildin í University of Kent er í 10 sæti yfir virtustu tölvudeildir háskólanna í Englandi sem eru um 100 talsins. Línan sem ég er á (Distributed Systems and Networks) er einnig talin vera frekar strembin. Það verður sem sagt fjör hjá mér í vetur.

Skólinn hjá Ingibjörgu byrjaði 17. sept og hefur farið af stað með látum. Það hrúgast inn endalaus verkefni og álagið er töluvert meira heldur en á síðusta ári. Það lítur út fyrir strembinn vetur hjá henni.

Bryndís er byrjuð á fullu í gamla leikskólanum sínum og er orðin hæst ánægð með það. Hún talar ekki mikla ensku en það er allt að koma hjá henni. Hún var svolítið feimin fyrstu dagana en núna er hún orðin "same good old Bryndís" eins og fóstrurnar segja. Bryndís er hæstánægð með að hafa Kötlu Vigdísi nálægt sér, en þær leika sér mikið saman. Katla er sömuleiðis ánægð með að hafa Bryndísi í nágrenninu.

Ég læt þetta nægja í bili en ég tók nokkrar myndir með nýja símanum mínum sem ég setti í myndaalbúmið. Gæðin eru ekki upp á marga fiska en þetta er betra en ekkert. Það er ágætt að smella á myndirnar, þá opnast þær í nýjum glugga í fullri stærð. Ég setti inn heimilisfangið ásamt síma efst í hægra hornið, í kynninguna á blogginu.

http://www.bjarki.net/gallery/thumbnails.php?album=23

Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/36

Comments, Trackbacks:

Comment from: Pálína Jónsdóttir [Visitor] Email
Mikið var gaman að heyra frá ykkur og hvað allt gengur vel. Við gengum um Prag í 2 daga og skoðuðum byggingar sem eru svo yfirdrifnar að mamma kemst alltaf í vont skap þegar hún sér þær þar sem hún veit að sauðsvartur almúginn svalt heilu hungri á meðan kóngaskrattar og prelátar voru að byggja þetta í kringum sína gullrassa. Borðað var á hverju kvöldi á flottustu matsölustöðum borgarinnar ( semsagt komin í hóp með kóngaskröttum!!)Þetta var mjög skemmtilegt og alltaf gaman að vera með vinum sínum á góðum stundum. Vegabréfið rennur út í nóv. næstkomandi og verður ekki endurnýjað. Kær kveðja, mamma og pabbi
PermalinkPermalink 03.10.07 @ 04:10
Comment from: Bjarki og Ingibjörg [Visitor] Email
Já, þetta skítapakk. Þú verður bara að láta þér nægja að labba um tún Hrafntófta og skoða hallir þinna gullrassa.
;-)
PermalinkPermalink 03.10.07 @ 11:13
Comment from: þóra - kveðja að handan [Visitor] Email
Semmtileg vitleysa þetta.Við erum gullrassarnir. Ég var að kaupa bíl fyrir þóru og stelpuna okkar 400þús subaru legacy 1999 flottur.kv bjarki (aka the tank)
PermalinkPermalink 10.10.07 @ 18:41
Comment from: Agust Olafsson [Visitor] Email · http://www.agust.org
Gaman að heyra frá ykkur! Gott að það gengur vel - hér í Minnesota gengur líka vel - margt spennandi að gerjast. Bjarki - ég þarf að bjalla í þig við tækifæri :-) Kveðja, Ágúst
PermalinkPermalink 10.10.07 @ 23:19

This post has 2 feedbacks awaiting moderation...

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

September 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 1

powered by
b2evolution