Maður veit ekki hvernig maður á að byrja nýja blogg færslu þegar rúmlega 3 mánuðir eru liðnir frá síðustu færslu. Hér með skilgreinist þetta blogg sem óreglulegt fréttabréf.
Það hefur ýmislegt gerst síðan í september. Ég hef sem fyrr stundað skólann. Ég var að enda við að klára prófin fyrir síðustu önn en í þetta sinn fór ég í 2 próf. Mér leist ekki á blikuna þegar ég kom úr jólafríinu frá Íslandi alveg ólesinn. Ég byrjaði á að kíkja á gömul próf og fékk nett sjokk því mér fannst þau svo erfið. Þetta átti sér stað þegar vika var í næsta próf og ég var skapi næst að gefast upp. En til allrar hamingju þá tókst mér að bægja vonleysishugsunum frá og ég tel mig hafa náð þessum 2 prófum (Enterprise Platforms og Distributed Systems). Þessir kúrsar eiga víst að vera þeir erfiðustu og skilja á milli manna og músa. Ég vona að ég komist í fyrri hópinn.
Ég er strax byrjaður í nærsta kúrs sem gengur út á að skilja "pakkaflæðið" og lógíkina sem á sér stað í vírunum þegar tölvur eru að tala saman. Ég er einnig búinn að velja mér lokaverkefni en það á eftir að koma í ljós hvort ég fái það þar sem að margir eru að berjast um þetta verkefni. Ingibjörg er nýbúin að klára tvö erfið verkefni sem biðu hennar eftir jólafrí. Krítikin gekk nokkuð vel og er hún bjartsýn á framhaldið. Þetta voru tvö síðustu verkefnin sem hún gerði í arkitektúrnum. Hún hefur ákveðið að fara yfir í innanhússarkítektúr þar sem að hún finnur sig betur í því.
Það er mjög gaman að hafa Venna og fjölskyldu hjá okkur. Bryndís unir sér vel þegar hún og Katla hittast. Í gær fórum við til Folkestone sem er á suðurströnd Kent skagans. Þar er mjög fallegt niður við ströndina og mjög skemmtilegur kastali fyrir krakkan til að djöflast í. Dagurinn endaði síðan á að við fórum öll út að borða saman. Fyrir jól hittums við yfirleitt á föstudögum og höfðum xfactor kvöld. Núna er xfactor búinn þannig að þá höfum við Næturvaktina í staðinn. Strákarnir fengu DVD diskinn í jólagjöf.
Við erum búin að heimsækja Fanney og Þóri í London og þau eru búin að heimsækja okkur einu sinni hingað í Canterbury. Það var mjög gaman að hitta þau og þeim leist vel á staðinn. Okkur leist líka vel á Beckenham, þar sem þau búa. Þó þau séu í London þá erum við samt í sömu sýslunni, þ.e. Kent sýslu. Þegar þau komu til okkar gæddum við okkur að sjálfsögðu á heimalöguðu sushi og einnig buðum við upp á amerískan brunch (eggs benedict). Fanney og Þórir buðu okkur upp á snilldar engifer kjúkling sem við höfum í kjölfarið eldað nokkrum sinnum. Þetta var vel heppnað og mjög gaman. Talandi um sushi, nú er búið að opna sushi stað í Canterbury. Við Ingibjörg vorum himin lifandi yfir því og töldum við þá Canterbury vera orðinn allt að því fullkominn bær. Því miður var staðurinn ekki nógu góður en við ætlum að gefa þeim einn séns í viðbót. Við höldum ennþá í vonina..
Það er skemmtilegra að vera á bíl hérna. Við erum búin að keyra svolítið um, ég er meira að segja búinn að keyra út á Heathrow og Stansted og er farinn að venjast því að vera öfugu megin.
Jæja ég ætla að segja þetta gott. Þið getið skoðað nýtt myndaalbúm hér: http://www.bjarki.net/gallery/thumbnails.php?album=24
http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/37
This post has 1 feedback awaiting moderation...
Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:
3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||