Post details: Skólamál og skíðaferð

09.02.08

Permalink 15:55:53, by Bjarki Email , 567 words, 4130 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Skólamál og skíðaferð

Nú erum við Ingibjörg búin að fá niðurstöður úr prófunum/krítikinni. Þetta gekk ágætlega hjá okkur alltsaman. Það er mikill léttir að vera búin að fá niðurstöður og Ingibjörg er þá komin á næsta skref í sínu námi; innanhússarkítektúr. Ég er búinn að komast yfir erfiðasta hjallann en þessir 2 kúrsar eru taldir vera erfiðasti hluti námsins en næst verða próf hjá mér í byrjun maí. Eftir það tekur síðan lokaverkefnið við. Ég hef heyrt í tveimur meðstúdentum mínum, annar féll í báðum og hinn féll í öðru þannig að ég prísa mig sælan. Ég fékk lokaverkefnið sem ég vildi fá. Þar vóg reynslan þungt. Það gengur út á að bæta við netvirkni við forritunarumhverfi sem hjálpar krökkum að læra að forrita. Forritunarumhverfið heitir greenfoot. Þetta gæti orðið áhugavert verkefni.

...halda áfram hér...


Bryndís er alltaf að stækka. Henni finnst skemmtilegast að leika við Kötlu. Henni finnst líka rosalega skemmtilegt að hlusta og hoppa. Ég útbjó disk með barnalögum fyrir hana sem er á repeat í botni allan daginn og hún hoppar og skoppar í rúminu sínu í takt við músikina. Við erum komin með ógeð af músikinni, maður vaknar með "Gott CD drive, góður harður diskur, án þess er ég, hvorki fugl né fiskur" (úr latabæ) á heilanum á morgnanna og sofnar með það á heilanum á kvöldin. Píla Pína er líka mjög vinsæl. Mér sýnist hún vera með heilmikla músik í sér.

Hún er farin að spyrja erfiðra spurninga. Í gærkvöldi spurði hún: "pabbi, afhverju eru konur ekki með skegg?". Ég þurfi að hugsa mig um og sagði "það er vegna þess að í eld gamladaga þá voru mennirnir alltaf úti í kuldanum að veiða í matinn, þá þurftu þeir að láta sér vaxa skegg svo þeim yrði ekki kalt í framan. En konurnar voru inni á meðan að hugsa um heimilið". Hún lét sér lynda þessa útskýringu. Síðan spurði hún mömmu sína: "mamma afhverju heiti ég Bryndís?". Og Ingibjörg svaraði: "það er af því að mömmu og pabba þótti Bryndís svo fallegt nafn". Þá knúsaði Bryndís mömmu sína mikið og vel og þakkaði henni vel fyrir nafnið. Við erum ánægð með að hún kann vel við nafnið sitt :0)

Við ákváðum í samráði við Venna og Svövu að skella okkur á skíði 5 - 12 apríl. Við erum búin að panta okkur fjallakofa í Sviss. Við hlökkum mikið til að skella okkur. Svæðið heitir Thyon (opna skrána með Google Earth).

Í dag var mjög gott veður þannig að við ákváðum að skella okkur í fish and chips. Við skruppum niður í Saint Margrets Bay sem er skemmtilegur staður við hvítu klettana við suður austur strönd Kent skagans, rétt hjá Dover. Þar fengum við mjög fínan fisk og við gátum spókað okkur niðri á ströndinni í sólinni. Hafið það gott á íslandi í snjónum. Mamma, þú prentar þetta kannski út fyrir ömmu og afa.

Kveðja,
- Bjarki, Ingibjörg og Bryndís


Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/38

Comments, Trackbacks:

Comment from: Rakel Sævarsdóttir [Visitor] Email
Hæ hæ,

Gaman að fá fréttir, gott að þið getið spókað ykkur í sólinni þegar veðrið er uppá sitt "besta" hér á fróni... Jólakortið ykkar hefur væntanlega ekki borist til ykkar þar sem ég var með rangt heimilisfang. Mér líst rosalega vel á þessa skíðaferð... væri til í eina svoleiðis ! Ingibjörg væri til í fá fréttir beint í æð... kannski ég bjalli bara einn daginn.

Kveðja Rakel
PermalinkPermalink 09.02.08 @ 18:40
Comment from: Pálína Jónsdóttir [Visitor] Email
Til hamingju með þetta allt elskurnar okkar.

Við höfum það gott. Verið að moka sig inn og út úr fjárhúsum alla daga og hindra að hross fari yfir alla skurði og girðingar sem sagt endalaus eltingarleikur. Svo er lesið og spilað þegar inn er komið.Pífa okkar er orðin svo hress og kát að hún er farin að hökta á Þangbrandi vini sínum aftur.

Ástar-og saknaðarkveðjur
mamma og pabbi
PermalinkPermalink 10.02.08 @ 04:26
Comment from: þóra & ísabella sól [Visitor] Email · http://www.ljonaprinsessa.barnaland.is
hæhæ alltaf gaman að fá fréttir af ykkur. gott að gengur vel í skólanum & að allir séu sáttir við sitt. þið eruð náttúrulega bara klárust :-)
við ætlum að skella okkur westur í á miðvikudaginn, ætlum að kíkja á þorrablót sléttuhrepps á laugardaginn. svo fer bjarki heim á sunnudag, en við mæðgur ætlum að vera viku í viðbót í "sveitinni".. gott að komast aðeins í slökun...
heyrumst fljótlega
kveðja þóra & ísabella sól
PermalinkPermalink 10.02.08 @ 08:57
Comment from: Göran Person [Visitor] Email · http://www.magnusunna.com
Tjena Tjena,
Oh vad trävligt att ni mår så bra och att vädret har varit så trävligt hos er.
Bra att höra att er utbildning går ocså bra.
Så hoppas vi att vi kan komma och besöka er i vår.

Med vänliga helsningar,
Svenskarana i Stockholm City!!!
PermalinkPermalink 11.02.08 @ 02:11

This post has 2 feedbacks awaiting moderation...

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

February 2012
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29        

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 1

powered by
b2evolution