Post details: Páskafréttir

23.03.08

Permalink 10:58:44, by Bjarki Email , 405 words, 2568 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Páskafréttir

Gleðilega páska gott fólk! Nú eru amma og afi úr Hnífsdal í heimsókn yfir páskana ásamt Jósef JR. Það var haldið gott íslenskt pylsupartý um leið og amma og afi komu af flugvellinum en við þurftum að bíða lengi eftir þeim þar sem það var slys á hraðbrautinni og mikið um tafir. Það tók Vernharð 6 tíma að sækja þau sem hefði átt að taka rúma 2 tíma ef allt hefði verið eðlilegt. Í gær fóru allir (nema ég var að læra :( ) í ferð til Hastings í nokkurskonar sædýrasafn. Það var mjög skemmtileg ferð en þar voru sköturnar líklega skemmtilegastar og einnig vakti kolkrabbinn og "mini" hákarlarnir lukku. Sköturnar komu alveg að fólki og þeir sem vildu gátu klappað þeim.

...halda áfram hér...

Þegar Hrafnkell átti afmæli 3. mars() fórum við í Thorpe park sem er skemmtigarður með margskonar rússíbönum og skemmtitækjum. Uppáhalds tækið mitt var rússibani sem fer upp í 62ja metra hæð og nær 129 km hraða á undir 2 sekúndum. Bryndísi fannst skemmtilegast á trampólíninu en þar var hún bundin í stórar teygjur þannig að hún skoppaði hátt upp í loftið.

Núna erum við nýkomin úr morgunmat frá Svövu og Vernharði. Þar var farið í páskaeggjaratleik og allir fundu eggin sín. Svava og Valgeir voru búin að gera þetta mjög flott þar sem hver fékk 5 vísbendingar áður en páskaeggin fundust. Við höfum ákveðið að innleiða þessa skemmtilegu hefð í okkar páskahald í framtíðinni.

Nú er ég búinn í fyrirlestrum og við taka próf í byrjun maí. Á Þriðjudaginn þarf ég að vera með kynningu á lokaverkefninu mínu þar sem fram kemur hvað ég ætla að gera, hvers vegna og hvernig. Þetta verkefni hefur truflað páskastemninguna en svona er að vera í skóla :|. Hnífsdælingarnir komu með veturinn með sér frá Íslandi en í dag kom fyrsti snjór vetrarins.

Ég setti inn nokkrar myndir en þar má finna frekari texta við hverja mynd. Albúmið er hér: http://www.bjarki.net/gallery/thumbnails.php?album=25

Ég er búinn að læsa myndaalbúminu, ég er búinn að senda á emaili hvað notandanafnið og lykilorðið er. Ég set það líka á Skype-ið og MSN-ið.

Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/39

Comments, Trackbacks:

Comment from: Pálína Jónsdóttir [Visitor] Email
Hæ elskurnar okkar! Erum hér í góðu yfirlæti að vanda í sveitinni og allir stútfullir af mat og páskaeggjum. Erum búin að eiga yndislega daga með alla grislingana okkar og Berglind og Siggi komu í dag úr bústaðnum á Kirkjubæjarklaustri. Húsbyggingarnar eru á fullu spýtti núna og gengur rosalega vel. Stefnum á að komast inn í haust, ef allt gengur...;-) Ástar- og saknaðarkveðjur frá okkur öllum hér. Gangi þér vel Bjarki minn á þriðjudaginn. Knús og þúsund kossar-Þórdís og co.
----------
Sælar elskurnar allar!!

Eins og Þórdís hefur sagt höfum við það mikið gott allir komu í mat samtals 22 og var ég á nálum að ekki yrði nógur matur þegar Sigga hringdi og ég heyrði á henni að þau voru alveg til í að koma til okkar og bauð þeim þá að koma líka með því skilyrði að ef einhver yrði svangur þá myndir sá hinn sami fara í hamborgarhrygg til hennar í kvöld þannig sömdum við. Veðrið hefur verið mjög gott og krakkarnir úti að leika sér. Þorvarður að prófa Klerksfíflin sem komin voru úr tamningu og gekk það allt vel og sumir í göngutúrum. Pabbi og mamma koma aftur á morgun svo það verður nóg að gera þá. Á þriðjudaginn ætla ég að passa fyrir Þóri og Siggu en þau þurfa að fara í bæinn. Ég verð með hugann hjá þér Bjarki minn og veit að allt á eftir að ganga vel hjá þér.
Ég læt þetta nægja núna og sendi ástar-og saknaðarkveðjur til allra.
Mamma
PermalinkPermalink 23.03.08 @ 14:27

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

July 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 2

powered by
b2evolution