Gleðilega páska gott fólk! Nú eru amma og afi úr Hnífsdal í heimsókn yfir páskana ásamt Jósef JR. Það var haldið gott íslenskt pylsupartý um leið og amma og afi komu af flugvellinum en við þurftum að bíða lengi eftir þeim þar sem það var slys á hraðbrautinni og mikið um tafir. Það tók Vernharð 6 tíma að sækja þau sem hefði átt að taka rúma 2 tíma ef allt hefði verið eðlilegt. Í gær fóru allir (nema ég var að læra
) í ferð til Hastings í nokkurskonar sædýrasafn. Það var mjög skemmtileg ferð en þar voru sköturnar líklega skemmtilegastar og einnig vakti kolkrabbinn og "mini" hákarlarnir lukku. Sköturnar komu alveg að fólki og þeir sem vildu gátu klappað þeim.
Þegar Hrafnkell átti afmæli 3. mars() fórum við í Thorpe park sem er skemmtigarður með margskonar rússíbönum og skemmtitækjum. Uppáhalds tækið mitt var rússibani sem fer upp í 62ja metra hæð og nær 129 km hraða á undir 2 sekúndum. Bryndísi fannst skemmtilegast á trampólíninu en þar var hún bundin í stórar teygjur þannig að hún skoppaði hátt upp í loftið.
Núna erum við nýkomin úr morgunmat frá Svövu og Vernharði. Þar var farið í páskaeggjaratleik og allir fundu eggin sín. Svava og Valgeir voru búin að gera þetta mjög flott þar sem hver fékk 5 vísbendingar áður en páskaeggin fundust. Við höfum ákveðið að innleiða þessa skemmtilegu hefð í okkar páskahald í framtíðinni.
Nú er ég búinn í fyrirlestrum og við taka próf í byrjun maí. Á Þriðjudaginn þarf ég að vera með kynningu á lokaverkefninu mínu þar sem fram kemur hvað ég ætla að gera, hvers vegna og hvernig. Þetta verkefni hefur truflað páskastemninguna en svona er að vera í skóla
. Hnífsdælingarnir komu með veturinn með sér frá Íslandi en í dag kom fyrsti snjór vetrarins.
Ég setti inn nokkrar myndir en þar má finna frekari texta við hverja mynd. Albúmið er hér: http://www.bjarki.net/gallery/thumbnails.php?album=25
Ég er búinn að læsa myndaalbúminu, ég er búinn að senda á emaili hvað notandanafnið og lykilorðið er. Ég set það líka á Skype-ið og MSN-ið.
http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/39
This post has 1 feedback awaiting moderation...
Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:
3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | ||||