Archives for: April 2008

17.04.08

Permalink 06:57:46, by Bjarki Email , 488 words, 8408 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Skíðaferðasaga og afmælisveislur

Jæja þá erum við komin aftur frá swissnesku ölpunum, þetta var mjög skemmtilegt, við vorum þarna á "off season" tíma þ.e. þegar helsta skíðatraffíkin er búin og farið að hlýna í veðri. Það góða við að vera "off season" er að það eru engar raðir í lyfturnar. Við vorum í frábærum skála sem var nálægt skiðasvæðinu og hægt var að renna sér beint frá skálanum niður í lyftu. Brekkan var frekar brött þannig að Venni, Valgeir og kannski Hrafnkell voru þeir hugrökku að láta sig flakka niður. En þegar við komum úr fjallinu var fínt að renna sér beint í skálann.

Lesa meira...

04.04.08

Permalink 16:35:11, by Bjarki Email , 132 words, 15134 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Næsti áfangastaður: Sviss

Jæja gott fólk, þá er komið að því. Á morgum skellum við okkur í skíðaferð til Sviss. Við munum fljúga frá Gatwick kl. 07.35 í fyrramálið sem þýðir að við þurfum að leggja af stað klukkan 04.00 í nótt. Við ætlum að keyra niður á völl og parkera bílnum í "long term parking". Við höfum hlakkað mikið til þessarar ferðar og þá sérstaklega Bryndís. Venni og fjölskylda ætla að keyra og fara líka eld snemma af stað í ferjuna yfir ermasundið. Við hittums síðan í fjallakofanum. Við verðum í þessari brekku á sunnudagsmorgun :D

Thyon web cam

Það þýðir víst lítið að hafa samband við okkur á meðan við verðum þarna. Það verður ekkert internetsamband þannig að við munum ekki svara pósti ;)

Biðjum að heilsa öllum!

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

April 2008
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< < Current > >>
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 3

powered by
b2evolution