Post details: Skíðaferðasaga og afmælisveislur

17.04.08

Permalink 06:57:46, by Bjarki Email , 488 words, 8408 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Skíðaferðasaga og afmælisveislur

Jæja þá erum við komin aftur frá swissnesku ölpunum, þetta var mjög skemmtilegt, við vorum þarna á "off season" tíma þ.e. þegar helsta skíðatraffíkin er búin og farið að hlýna í veðri. Það góða við að vera "off season" er að það eru engar raðir í lyfturnar. Við vorum í frábærum skála sem var nálægt skiðasvæðinu og hægt var að renna sér beint frá skálanum niður í lyftu. Brekkan var frekar brött þannig að Venni, Valgeir og kannski Hrafnkell voru þeir hugrökku að láta sig flakka niður. En þegar við komum úr fjallinu var fínt að renna sér beint í skálann.

...halda áfram hér...


Bryndís stóð sig eins og hetja en segist ekkert ætla á skíði aftur, allavega ekki í hræðilegu brekkurnar. Hún var samt farin að skíða alveg sjálf í barnabrekkunni. Þarna var færibandalyfta og undir rest fór hún hring eftir hring alveg sjfálf. Hún fór einn dag í skíðaskóla en henni fannst miklu skemmtilegra að vera með mömmu og pabba. Venni frændi og co tóku hana stundum þegar við vildum fara að renna okkur og þegar við komum til baka þá var hún alltaf búin að taka þvílíkum framförum. Hún þorði ekki að væla í þeim en allt í lagi að væla í mömmu.

Eins og Venni segir þá vorum við á fjögurra dala svæðinu í Swiss þar sem þekktasta svæðið er líklega Verbier. Við vorum á Thyon svæðinu en hægt er að skíða á milli allra dalanna. Við héldum okkur í nánd við barnvæn svæði þannig að Bryndís gæti notið sín. Eftir ferðina vildi hún ekkert fara heim aftur til Englands, hún vildi annaðhvort búa í Sviss eða fara heim til Íslands. Mamma átti að fara og sækja dótið hennar og koma svo aftur.

Núna erum við hjónakornin á fullu í skólanum, ég (Ingibjörg) byrjaði strax á því að fara í Crit á mánudaginn þannig að helgin var þéttsetinn (afmæli og lærdómur). Svo hélt Bjarki uppá afmælið sitt í gær þannig að súkkulaðiköku forðinn er alveg i góðum málum. Næst á dagskrá hjá okkur hjónunum er Bilbao ferð 24.apríl með fyrirtækinu hans Bjarka. Fyrirtækið var svo almennilegt að bjóða okkur fátæku námsmönnunum í helgarferð og hlökkum við mikið til. Bryndís ætlar að vera hjá Venna frænda og co. á meðan.

Við erum búin að setja saman fullt af myndum og videoum hér (notandanafn og lykilorð er í tölvupóstinum). Einnig eru fleiri myndir á blogginu hjá Venna og co.

Segjum þetta gott í bili. Biðjum að heilsa til Íslands.

Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/41

Comments, Trackbacks:

Comment from: Pálína Jónsdóttir [Visitor] Email
Sælar ástirnar okkar!!
Mikið hefur þetta verið gaman hjá ykkur myndirnar frábærar og gaman að fá að taka þátt í þessu með ykkur í gegnum þær. Héðan er allt gott að frétta og öllum líður vel. Berglind kemur í dag með stelpurnar og e.t.v. koma Þorvarður og Þórdís líka um helgina. Sigga og Þórir voru að taka inn hesta í gærmorgun og koma bráðum að líta á þá og e.t.v. að járna.

Hafið það sem allra best!!

Ástar-og saknaðarkveðjur,
mamma og pabbi
PermalinkPermalink 18.04.08 @ 04:06

This post has 1 feedback awaiting moderation...

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

July 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 1

powered by
b2evolution