Post details: Bilbao ferð með meiru

26.05.08

Permalink 08:16:22, by Bjarki Email , 634 words, 3967 views   Icelandic (IS)
Categories: Almennt

Bilbao ferð með meiru

Eins og fram kom í síðustu færslu þá var haldið upp á árshátíð Kögunar í Bilbao í tilefni 20 ára afmælis fyrirtækisins. Það var gaman í Bilbao og veðrið lék við okkur allan tíman með 25 stiga hita og sól. Norðurhluti Spánar er mun grænni en sá syðri og hitastigið er jafnara. Þar rignir meira og hafði t.d. rignt eins og hellt væri úr fötu helgina áður. Þetta er vinsæll ferðamannastaður fyrir Spænska aðalinn og þá sérstaklega San Sebastian en við heimsóttum þann bæ einmitt. San Sebastian er vagga Baskanna þar sem krössuð eru slagorð á veggi og hengdir upp áróðursborðar hér og þar. Það sem stendur uppúr ferðinni var San Sebastian ferðinog að sjálfsögðu gala ball sem haldið var á hótelinu. Ferðin okkar í Guggenheim safnið var einnig athyglisverð. Einnig var gaman að narta í smárétti (Pintos eða Tapas) á hverju götuhorni með allskyns góðgæti og renna því niður með hvítvíni eða bjór. Töluvert er af athyglisverðum arkítektúr í Bilbao sem var skemmtilegt að sjá.

...halda áfram hér...


Nú er ég (Bjarki) búinn í prófum og gengu þau ágætlega hjá mér. Ég mun fá niðurstöður í vikunni og er ég ansi spenntur að sjá hver árangurinn verður. Nú er tekið við lokaverkefni sem ég verð í í allt sumar en ég þarf að skila því í byrjun September. Þegar því er lokið verð ég búinn með námið. Ingibjörg er búin með önnina fyrir utan eina litla ritgerð.

Á Laugardaginn fórum við í heimsókn til Fanneyjar og Þóris í Euróvision partí. Þar var dekrað við okkur með dýrindis grillmat og drykk. Okkur fannst skítt að Rússland hafi unnið keppnina þar sem að okkur fannst lítið varið í það lag. Einnig fannst okkur leiðinlegt að horfa á austantjaldslöndin raða sér upp í flest efstu sætin eina ferðina enn :o( Það var okkur hins vegar gleðiefni að cat woman þeirra Svíanna reið ekki feitum hesti.

Af Bryndísi er allt gott að frétta. Hún unir sér vel í skólanum og það vella upp úr henni gullkornin þessa dagana. Um daginn var ég að útskýra fyrir henni að ég væri að fara í próf og ég sagði henni lauslega hvernig prófið færi fram. Þegar ég var búinn að útskýra sagði Bryndís: "Ekki tapa". Síðan kom ég heim úr prófinu og var nokkuð viss um að hafa náð þvíog þá sagði ég við Bryndísi að ég hafi ekki tapað. Þá sagði Bryndís: "Töpuðu hinir??". Eitt kvöldið þegar Ingibjörg var að svæfa var Bryndís sérlega hugsi og spurði: "Afhverju erum við í alvörunni?". "Afhverju er lampi bara lampi??". Stundum er svolítill stelpu stráka rígur á heimilinu þar sem mæðgurnar eru oftar en ekki saman í liði á móti mér. Einhverntíman sagði Bryndís: "Mamma er bestust og pabbi er silly billy". Stundum vaknar dísin eldsnemma og þá bendum við henni á að nóttin sé ennþá úti og að hún þurfi að sofa lengur. Hún skríður iðulega uppí til okkar á nóttunni og einn morguninn þegar hún vaknaði sá hún að það var ekki nótt lengur úti og sagði: "Dagurinn er hvítur".

Við settum inn eitthvað af myndum sem þið getið séð hér Einnig getið þið kíkt á bloggið hjá nágrönnum okkar en þar eru fréttir og myndir þar sem við komum eitthvað við sögu.

Trackback address for this post:

http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/42

Comments, Trackbacks:

Comment from: Helena [Visitor] Email
Ég hitti einmitt Kögunarfólkið á Leifsstöð þegar þau voru að fara, mikið stuð á þeim þrátt fyrir dálitla seinkun :). Gaman fyrir ykkur að vera boðið með í ferðina.

Til hamingju með prófsigurinn ;).

Kveðja,
Helena
PermalinkPermalink 27.05.08 @ 06:30
Comment from: Bjarki [Member] Email · http://www.bjarki.net
Takk fyrir það Helena :o)

Já það var ekki nema 6 tíma seinkunn hjá þeim ;o) Sem betur fer flugum við frá London og þurftum ekki að hírast í gamalli rellu sem ætlaði aldrei að hafa það á loft.
PermalinkPermalink 27.05.08 @ 06:35
Comment from: Sigga sys [Visitor] Email · http://www.sjos.blog.is
Dánarfregnir og jarðafarir..... Andast hefur í Canterbury á Englandi bloggsíða ein sem haldið var úti af Ingibjörgu, Bjarka og Bryndísi. Aðstandendur
PermalinkPermalink 14.01.09 @ 17:33

This post has 3 feedbacks awaiting moderation...

Leave a comment:

Your email address will not be displayed on this site.
Your URL will be displayed.

Allowed XHTML tags: <p, ul, ol, li, dl, dt, dd, address, blockquote, ins, del, span, bdo, br, em, strong, dfn, code, samp, kdb, var, cite, abbr, acronym, q, sub, sup, tt, i, b, big, small>
(Line breaks become <br />)
(Set cookies for name, email and url)
(Allow users to contact you through a message form (your email will NOT be displayed.))

Fjölskyldan í Canterbury

Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:

3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476

July 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Search

Categories

Misc

XML Feeds

What is RSS?

Who's Online?

  • Guest Users: 3

powered by
b2evolution