Jæja þá drattast maður loksins til að skrifa smá fréttir. Það hefur margt gerst síðan síðast var skrifað... Venni og fjölskylda fluttu aftur til Íslands í júlí. Þau sendu börnin heim á undan og Bryndís fékk að fara með. Þá notuðum við fullorðna fólkið tækifærið og skruppum í sólarlandsferð til grísku eyjunnar Rhodos. Það var mjög fín ferð þar sem farið var í köfun, fiðrildadal, Acrapolish og í bátsferðir. Eftir þessa ferð eyddum við síðan sumrinu á Íslandi og við vorum einnig þar yfir jólin.
Þegar við komum út aftur eftir sumarið þurfti ég (Bjarki) fljótlega að skila inn mastersritgerðinni sem hafðist og er ég nú kominn með meistaragráðu í Distributed Systems and Networks. Ég kem sjálfum mér á óvart þar sem að ég útskrifaðist af málabraut í menntaskóla. Fyrir áhugasama tölvunörda þá fjallaði lokaritgerðin um Greenfoot sem er umhverfi fyrst og fremst hugsað til að kenna byrjendum að forrita. Umhverfið leyfir notendum t.d. að búa til leiki á tiltölulega einfaldan hátt. Notendur geta hlaðið upp leikjunum sem þeir hafa búið til á auðveldan hátt inn á www.greenfootgallery.org þar sem aðrir geta prófað þá og skoðað virknina á bakvið. Til að geta spilað leikina þurfið þið að hafa java 1.5 plugin eða nýrra. Mitt verkefni var að bæta netvirkni við umhverfið og varð endanleg lausn að notast við "server push" tækni en hugtakið "comet" er notað fyrir slíka virkni. Áhugasamir geta nálgast ritgerðina hér.
Bryndís byrjaði í skóla í september en hérna í landi englanna (yeah right) byrja krakkar fjögurra ára í skóla. Þetta hefur gengið mjög vel og er hún nokkuð sátt í skólanum. Samt hlakkar hún mikið til að flytja aftur til Íslands og umræðuefnið er oft "þegar við flytjum til Íslands" áður en hún fer í rúmið á kvöldin. Eitt gullkorn kom frá henni um daginn þegar ég spurði hana: "Bryndís, hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór?" og hún svaraði: "fimm ára!". Bryndís er í skólanum frá 9 - 3 en á meðan vinn ég heimanfrá fyrir Kögun.
Þó svo að við séum búin að búa hérna í rúmlega 2 ár þá vissum við ekki af íslenskri fjölskyldu sem býr hér í Canterbury. Í ljós kom að þetta var nágranni minn síðan úr Garðabænum í gamla daga, Svavar Sigurjónsson og Anna María konan hans ásamt 3 dætrum og 2 barnabörnum. Þau eru búin að búa hér í mörg ár. Við erum búin að vera í góðu sambandi síðan þetta komst upp og var þetta fengur fyrir Bryndísi þar sem að barnabarn Svavars, Anna Louise er jafngömul Bryndísi og eru þær góðar vinkonur. Svavar vinnur hjá Air Atlanta en þeir eru með aðstöðu í Ramsgate sem er í u.þ.b. 20 mínútna fjarlægð frá Canterbury. Það er nú reyndar svo að annar gamall nágranni minn úr Faxatúninu, Svanur Þorsteinsson er líka að vinna þar ásamt fleiri Íslendingum. Nýlega var innkaupadeildin þar flutt frá Íslandi hingað út og bættust þá slatti af íslendingum í hópinn. Anna María er fimleikakennari og nýtur Bryndís góðs af því en hún mætir í fimleika einu sinni í viku.
Það styttist í að skólinn klárist hjá Ingibjörgu, nú er síðasta önnin að byrja. Við hlökkum mikið til þegar þetta klárast og stefnum við á að taka slaginn í kreppunni á Íslandi. Við ætlum reyndar að kíkja á aðstæður hjá Magga og Sunnu í Svíþjóð um helgina því við verðum að hafa plan B ef að Sjáfstæðisflokkurinn kemst aftur til valda. Við getum ekki búið í landi þar sem sértrúarsöfnuður ræður ríkjum
. En nóg af pólitík. Ég setti inn nokkrar myndir á http://bjarki.net/gallery/thumbnails.php?album=28
Bestu kveðjur til allra.
http://www.bjarki.net/blog/htsrv/trackback.php/43
This post has 16 feedbacks awaiting moderation...
Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:
3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |