Nú erum við Ingibjörg búin að fá niðurstöður úr prófunum/krítikinni. Þetta gekk ágætlega hjá okkur alltsaman. Það er mikill léttir að vera búin að fá niðurstöður og Ingibjörg er þá komin á næsta skref í sínu námi; innanhússarkítektúr. Ég er búinn að komast yfir erfiðasta hjallann en þessir 2 kúrsar eru taldir vera erfiðasti hluti námsins en næst verða próf hjá mér í byrjun maí. Eftir það tekur síðan lokaverkefnið við. Ég hef heyrt í tveimur meðstúdentum mínum, annar féll í báðum og hinn féll í öðru þannig að ég prísa mig sælan. Ég fékk lokaverkefnið sem ég vildi fá. Þar vóg reynslan þungt. Það gengur út á að bæta við netvirkni við forritunarumhverfi sem hjálpar krökkum að læra að forrita. Forritunarumhverfið heitir greenfoot. Þetta gæti orðið áhugavert verkefni.
Maður veit ekki hvernig maður á að byrja nýja blogg færslu þegar rúmlega 3 mánuðir eru liðnir frá síðustu færslu. Hér með skilgreinist þetta blogg sem óreglulegt fréttabréf.
Loksins loksins blogg gott fólk! Það eru eflaust margir sem bíða spenntir eftir að heyra frá okkur hvernig hefur gengið í þetta sinn hjá okkur í Canterbury. Við höfum haft nóg að gera við að koma okkur fyrir. Fyrir þá sem ekki vita að þá er Venni bróðir hennar Ingibjargar fluttur hingað til Canterbury ásamt fjölskyldu (Hjónin ásamt 3 börnum, tveir strákar 11 og 13 ára, og ein 5 ára stelpa). Þau ákváðu að prufa England í 1 ár. Við höfum notið góðs af veru þeirra hér því við vorum íbúðarlaus þegar við komum hingað þann 1. sept. Við áttum heima inni á þeim á meðan við vorum að redda okkur íbúð til að leigja. Okkur tókst að redda íbúð mjög nálægt þeim eins og við vildum. Það er rosalega gott að hafa hluta af fjölskyldunni í næsta nágrenni :o)
Jæja þá kemur loksins blogg frá okkur í Canterbury. Ingibjörgu gengur vel í skólanum. Hún fór til Parísar á vegum skólans fyrir 2 vikum og var sú ferð vel heppnuð. Við Bryndís vorum ein heima frá mánudegi til fimmtudags á meðan og gekk það vel.
Nú er hann Skúli okkar dáinn. Hann varð fyrir bíl þann 1. feb. Skúli fylgdi okkur allt frá því að við tókum hann að okkur í Kaliforníu. Við ættleiddum hann en Berglind systir átti hann fyrstu tvö árin.
Skúli flutti til Íslands með okkur árið 2002 og endaði ævina í sveitinni hjá ömmu og afa. Honum leið vel þar og hafði líklega aldrei verið í betra formi, þá á gamals aldri eða níu ára.
Samkvæmt mannanofn.com þá er nafnið Skúli komið af nafnorðinu "skjól" og merkir sá sem skýlir, - verndari. Hann passaði vel upp á okkur og Bryndísi líka eftir að hún fæddist. Hann bar nafn með rentu.
Við söknum Skúla mikið og okkur finnst við hafa misst hluta af litlu fjölskyldunni okkar.
Hratt og mikið hlaupið gast,
sem hljóta að teljast undur,
skynsamur og skýr þú varst
Skúli sæti hundur.
- BJÞ
Við tókum saman stórt myndaalbúm með sögum til heiðurs Skúla: http://www.bjarki.net/gallery/thumbnails.php?album=21
Hér er hægt að lesa um daglegt líf fjölskyldunnar í Canterbury. Ingibjörg sækir nám í UCCA (University College For The Creative Arts) í Canterbury, Kent. Bjarki og Bryndís fengu að fljóta með (fjölskyldan).
Heimilisfang:
3 Waters edge, The Island, Barton Mill
Canterbury CT1 1WX
Kent, UK
Sími: 00441227470476
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||